þriðjudagur, 11. desember 2007

Ný plata...

Hvað haldið þið!!! Einn mesti fáviti íslands var að gefa út plötu. Hann Geir Ólafsson stendur fyrir sínu. Sér hann þetta ekki sjálfur eða?

föstudagur, 23. nóvember 2007

Mæðraskoðun

Við fórum í mæðraskoðun í gær. Það var allt í góða með Kötu og beibíið. Svolítið gaman að fá að heyra hjartsláttinn í barninu. Maður fékk svona hlýja tilfinningu í hjartað og hugsanirnar flugu svoleiðis í hausnum á manni. Alveg hreinnt mögnuð tilfinning.

Í dag ætla ég að reyna að skipta út bílnum hennar Kötu. Vonandi að það gangi vel því þeir hjá B & L eru að gefa 100 þúsund króna gjafabréf í smáralindina :P hehe

Þangað til næst

fimmtudagur, 15. nóvember 2007

Nýtt...

Ég var að setja linkinn inn á heimasíðuna hjá bumbukrílinu okkar. Endilega tjékkið á henni :D

Kveðja Brynjar, Kata og Bumbukrílið

miðvikudagur, 14. nóvember 2007

Persónunjósnir

Ég var að lesa þessa grein á mbl.is. Ég get ekki betur séð að það sé eitthvað undarlegt við þetta allt saman. Að planta einhverju í alla bíla í evrópu sem getur séð hvað við erum að gera. Hvað ef að löggan fær aðgang að þessu? Fær maður þá bara sendan seðil heim til sín ef maður hefur verið á of miklum hraða í of langan tíma? Það þarf virkilega að skoða þetta áður en þetta verður sett í gang.

Ykkar Brynjar

þriðjudagur, 13. nóvember 2007

Sónarinn

Mig langar að sýna ykkur sónarinn sem við fórum í þegar 12 vikur voru búnar :)


Þetta var náttúrulega alveg æðislegt að sjá. Þarna inni er barn og þetta er barnið okkar.

En það er fátt að frétta, okkur gengur bara vel hérna í borg óttans. Erum rétt aðeins byrjuð á því að kaupa jólagjafir handa fólkinu. Svoldið magn af jólagjöfum :D en þetta brakast.

Óhætt að segja að það sé kalt úti þessa dagana. Eins og ég segi svo oft "það er helvítis dumbungur* úti"

Meira var það ekki...

Dumbungur = Kalt og vindasamt

miðvikudagur, 31. október 2007

Jæja...

Go Cindy Crawford

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1299972

laugardagur, 27. október 2007

Fréttir, Brynjar Freyr Heimisson segir frá

Það er allt gott að frétta af okkur héðan úr borg óttans. Langaði að segja ykkur að við erum ólétt, erum komin 3 mánuði á leið og það gengur allt eins og í sögu. Við erum ekkert smá ánægð með þetta allt saman. Fórum í sónar um daginn og ég sver það, þetta er ein skrítnasta tilfinning sem maður upplifir. Að heyra hjartsláttinn, sjá barnið hreyfa sig og að vita það að þetta sé eitthvað sem á eftir að dýrka mann og dá, hata mann og elska svo þegar á endan er komið. Æjj þetta er bara snilld.

Fórum á leikritið pabbann um helgina. Fórum með Lindu og Reyni, Linda er systir Kötu og Reynir er kallinn hennar Lindu. En þetta var ekkert smá gott leikrit. Ég hló mig alveg máttlausan, á tímabili þá sé ég ekkert því að ég hló svo mikið hehehe :D

Fengum Rakel, Tedda og Ernu í heimsókn á sunnudaginn. Voða gott að fá að hitta fólkið sitt. við spjölluðum og hlógum og svona, voða gaman.

En jæja það gengur ekki að vera að slóra þetta svona lengur. Verð að fara að gera eitthvað.

Hafið það gott